Beint í efni
Mínar Síður

Verslun/Lausasölulyf/
Corsodyl 10mg/g 50g

Corsodyl 10mg/g 50g

081490

Product information


Attachments

Short description

Corsodyl 50g 10mg/g [munnh.hl]

Description

Corsodyl munnholshlaup er notað til sótthreinsunar fyrir og eftir munn- og tannaðgerðir.

Tímabundin meðferð við munnbólgu af völdum gervitanna.

Tímabundin meðferð til varnar bakteríum og tannsteini vegna tímabundinna sjúkdóma, slyss, mikillar tannsteinsmyndunar, tannholdsbólgu og tannslíðursbólgu.

Ekki skal nota Corsodyl fyrir börn yngri en 12 ára nema læknir eða tannlæknir ráðleggi það.

Notið 1-2 svar á dag á sama hátt og venjulegt tannkrem. Um það bil 2 cm af hlaupi er sett á tannbursta og burstið í a.m.k. 1 mín. Notið hlaupið beint á sárin/bólgur af völdum gervitanna.

Við tannholdsbólgu er mælt með meðhöndlun í u.þ.b. einn mánuð. Corsodyl er notað eftir tannburstun með tannkremi en ekki fyrir. Skola skal munninn vandlega eftir tannburstun, annars geta leifar af tannkreminu, t.d. natríumlaurýlsúlfat verkað gegn áhrifum klórhexidínsins. Lyfið getur valdið mislitun tanna en hægt er að koma í veg fyrir þetta með því að nota Corsodyl t.d. á kvöldin og venjulegt tannkrem á morgnana.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.