Kaupskilmálar - Urðarapótek
1. Skilmálar
Þessir skilmálar gilda um kaup á vöru eða þjónustu hjá Urðarapóteki ehf.
Skilmálarnir eru samþykktir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og tryggjum við okkar viðskiptavinum, örugg viðskipti á netinu.
2. Skilgreiningar
Seljandi er Urðarapótek ehf., kt. 650510-0460. Kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikningi. Kaupandi verður að vera a.m.k. 18 ára.
3. Skilaréttur
Urðarapótek skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt.
Almennur skilafrestur á vörum gegn framvísun kvittnuar er 30 dagar. Ef 30 dagar eru liðnir frá kaupum á vöru er ekki boðið upp á endurgreiðslu eða vöruskipti.
Aðeins er tekið við vörum í óopnuðum umbúðum og í sama ásigkomulagi og þær voru við afhendingu. Lyfjum og lausasölulyfjum er ekki hægt að skila né fást þau endurgreidd nema um mistök af hálfu Urðarapóteks sé að ræða. Að öðru leyti gilda lög og reglur um afgreiðslu og afhendingu lyfja.
Ef til endurgreiðslu kemur innan 30 daga frá kaupum, mun Urðarapótek endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og viðskiptavinur greiddi fyrir hana - þ.e. með bakfærslu á kreditkorti eða innleggi á bankareikning viðskiptavinar ef um staðgreiðslu var að ræða.
Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Ef vara reynist gölluð eða vegna rangrar afgreiðslu greiðir Urðarapótek fyrir endursendingu.
4. Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru áður en gengið er frá greiðslu.
Heimsendingar með Dropp:
Höfuðborgarsvæðið: 1.350 kr.
Aðrir staðir: Akranes, Eyrarbakki, Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Reykjanesbær, Þorlákshöfn : 1.450 kr.
Afhending á næsta Dropp stað:
Höfuðborgarsvæðið: 750 kr.
Aðrir staðir á landinu: 900 kr.
Ef verslað er fyrir meira en 8.900 kr. fellur sendingargjald niður.
5. Afhendingartími
Heimsendingar með Dropp:
Pantanir á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Hveragerði, Selfossi og Reykjanesi sem berast fyrir kl. 12:00 virka daga er hægt að fá sendar heim samdægurs.
- Pantanir sem eru gerðar fyrir kl. 12:00 eru sendar heim samdægurs á milli kl. 17:00-22:00
- Pantanir sem eru gerðar eftir kl. 12:00 eru sendar heim næsta dag milli kl. 17:00-22:00
Dropp sendir SMS á farsímanúmer sem skráð er í pöntunarferlinu þegar pöntun er tilbúin til afhendingar.
Sendingar á Dropp staði um allt land:
Höfuðborgarsvæðið:
- Pantanir sem eru gerðar fyrir kl. 12:00 virka daga eru tilbúnar til afhendingar sama dag eftir kl. 17:00.
- Pantanir sem eru gerðar eftir kl. 12:00 virka daga eru tilbúnar til afhendingar næsta dag eftir kl. 17:00.
Landsbyggðin:
Akranes, Hveragerði, Reykjanesbær, Sandgerði
- Pantanir sem eru gerðar fyrir kl. 12:00 virka daga eru tilbúnar til afhendingar sama dag eftir kl. 19:00.
- Pantanir sem eru gerðar eftir kl. 12:00 eru tilbúnar til afhendingar næsta virka dag eftir kl. 19:00.
Landsbyggð aðrir staðir
- Agreiðslutími pantana er 1 - 2 virkir dagar
Dropp sendir SMS á farsímanúmer sem skráð er í pöntunarferlinu þegar pöntun er tilbúin til afhendingar.
Sótt í apótek:
Pantanir eru afgreiddar á opnunartíma apóteksins virka daga 09:00 – 18:30 og laugardaga 11:00 – 16:00. Pöntun þarf að berast í tæka tíð fyrir lokun.
6. Verð og verðbreytingar
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Urðarapótek áskilur sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða villu í skráningu. Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturvirkar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.
Ef vara sem pöntuð hefur verið reynist ekki til á lager, upplýsum við viðskiptavini okkar um það og bjóðum að senda vöruna þegar hún verður fáanleg að nýju. Ef pöntuð vara verður ekki til á lager á næstunni (innan 30 daga) mun Urðarapótek endurgreiða viðskiptavini pöntunina að fullu hafi greiðsla þegar farið fram.
7. Persónuvernd
Seljandi meðhöndlar allar upplýsingar sem trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til þeirra viðskipta sem þær eru gefnar fyrir. Að öðru leyti vísast til upplýsinga um meðferð persónuupplýsinga og persónuvernd á heimasíðu Urðarapóteks.
8. Öryggi
Urðarapótek tryggir greiðsluöryggi eins og frekast er kostur á hverjum tíma. Allar greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslugátt Rapyd.
9. Greiðslumöguleikar
Í netverslun Urðarapóteks er boðið upp á að greiða með öllum helstu kredit- og debetkortum. Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Rapyd hf.
10. Varnarþing
Þessir skilmálar samræmast íslenskum lögum. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
11. Um Urðarapótek
Urðarapótek ehf
Vínlandsleið 16
113 Reykjavík
Sími: 577-1770
Netfang: urdarapotek@urdarapotek.is
VSK nr: 105530
Kt: 650510-0460