
Blóðþrýstingsmælingar
Breytingar á blóðþrýstingi geta gefið mikilvægar vísbendingar um hættu á sjúkdómum. Það er einfalt og fljótlegt að láta mæla blóðþrýstinginn reglulega. Í Urðarapóteki bjóðum við upp á blóðþrýstingsmælingar. Komdu inn og láttu mæla hjá þér blóðþrýstinginn.

Frí heimsending
Póstsendingar:
Urðarapótek búður upp á póstsendingar um land allt. Lyfin og póstsendingargjaldið eru greidd með símgreiðslu á greiðslukort eða inn á reikning Urðarapóteks. Farið er með póstseningar samdægurs eða daginn eftir pöntun.

Tækifærisgjafir – gjafapakkar
Komdu og kynntu þér tilboðin okkar. Við erum með úrval tilbúinna gjafapakka sem henta sem tækifærisgjafir fyrir flesta fjölskyldumeðlimi.
Við viljum til dæmis benda á Clinique gjafapakkana okkar. Clinique eru einstakar snyrtivörur sem framleiddar eru til með fallega húð að markmiði.
Fyrstu vörurnar frá Clinique voru einstæðar að því leyti að þær voru meðal fyrstu snyrtivara í heiminum, sem byggðar voru á einstæðri þekkingu húðlækna.
Clinique vörurnar eru margprófaðar gagnvart ofnæmisviðbrögðum og þær innihalda engin ilmefni. Allar snyrtivörur frá Clinique eru þróaðar af sérfræðingum í húðlækningum og ávallt er hægt að finna vöru sem passar við þína tegund húðar. Svo spillir ekki að verðið á Clinique vörunum er hagstætt í samanburði við margar aðrar snyrtivörur.

Frí skömmtun í lyfjabox
Þarftu að taka mörg mismunandi lyf á hverjum degi?
Urðarapótek kemur þér til aðstoðar við að hafa stjórn á lyfjagjöfinni.
Við sjáum um fría skömmtun í lyfjabox og sendum einnig vörur heim, sé þess óskað.
Komdu og kannaðu þjónustuna hjá okkur. Okkar metnaður er að veita frábæra þjónustu í hvívetna.
